Auglýsing

Klukkan

Netfangið okkar: solbakki@hive.is

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Gestur og Bryndís
  • Netfang: solbakki@hive.is
  • Staður: 620 Dalvík
  • Heimilisfang: Hringtún 30
  • Símanúmer: 8667239
  • Um mig: Við búum á Dalvík, átta manna fjölskylda með tvær tíkur Emblu og Millu (Shakira Mist í ættbók) Þrjú börn eru floginn úr hreiðrinu en heima eru Viktor (21) Lilja (14) og Símon (9) hann er einhverfur.
  • Annað: Retrieverdeildin hefur mælt með öllum okkar gotum, og verið með í ráðum um rakka á tíkurnar. Við leggjum mikla áherslu á að foreldrarnir séu með mjaðmir- og olnboga í lagi, DNA/PRA fríir og með augnskoðanir í lagi. Og að foreldrarnir hafa tekið þátt í sýningum HRFÍ og/eða veiðiprófi með góðum árangri :0). Okkar markmið er að rækta blíða og HEILBRIGÐA heimilis- og veiðiihunda.

Leikur dagsins

Er áhugi á hvolpum?

30. nóvember 2011 klukkan 14:14

Nú fer að líða á því að við verðum að ákveða okkur hvort við látum Millu (Shakiru Mist) eiga aftur, við reiknum með að hún byrji á lóðaríi núna í desember.  Þannig að ef af því verður verða þá ættu hvolparnir að vera tilbúnir til afhendingar í lok apríl eða byrjum maí ef allt gengur að óskum.  Væntalegur faðir hvolpanna yrði þá Ljóssins Korri http://www.retriever.is/DogProfile.asp?pedID=2627 , hann reyndist mjög vel í síðast og urðu hvolparinir undan þeim alveg sérstaklega vel lukkaðir, eins og veiðipróf og sýningardómar bera vott um.
En það er þetta með framboð og eftirspurn, undanfarið hafa margir labradorhvolpar litið dagsins ljós svo við veltum því fyrir okkur hvort einhverjir séu áhugasamir, er einhver þarna úti að leita sér að frábærum félaga og/eða góðum veiðihundi?
Endilega hafið samband hér á síðunni eða inni á facebook og látið vita.
kveðja Bryndís og Gestur
BB 8667239/8662486 GM

Sóltúns Freyja Dís til sölu.

04. ágúst 2011 klukkan 13:35

Vegna óviðráðanlegra ástæna verður Ásdís Jenna að láta frá sér hana Freyju, tíkin er rúmlega eins árs gömul, félagslynd og orkumikil.  Áhugasamir geta haft samband við okkur Gest í síma 8662486 og Bryndís 8667239.

Febrúarsýning HRFÍ

28. febrúar 2011 klukkan 11:53
Hún Artemis Rós (Artý) okkar keppti í hlvopaflokki 6-9 mánaða og varð í þriðja sæti með góða dóma.  Til hamingju með það Árnmar og Sólrún!

´Hvolpar´í heimsókn

14. febrúar 2011 klukkan 12:53
  Við erum búin að fá nokkra hvolpa úr seinna gotinu hennar Millu í heimsókn.  Það er varla hægt að tala um að þeir séru hvolpar lengur þó þeir bara 7 mánaða, því þeir eru alveg að ná mömmu sinni að stærð....hæð að minnsta kosti, eiga eftir að breikka eitthvað að sjálfsögðu. 

Gullfallegir og efnilegir.

ps set inn myndir við tækifæri og gaman væri að fá sendar myndir af fleirum.  kv Bryndís og Gestur.

Jóla- og áramótakveðjur

30. desember 2010 klukkan 03:08
Við óskum ykkur öllum Sóltúns- hundaeigendum gleðilegra jóla(restar) og gæfu á komandi ári. Smile Takk fyrir samskiptin á árinu og gangi ykkur öllum vel með ´besta vininn´ykkar.

Úr gestabókinni

24. nóvember 2010 klukkan 19:17
Það er alltaf gaman þegar hvolparnir ´okkar´ fá hrós Laughing

Hæhæ
Kíkti hérna við og kvitta fyrir því, Vildi endilega segja ykkur að Artemis Rós var í fyrsta skólatímanum sínum og fékk mikið hrós hversu fríð hún er, með svo fallegan haus... ;)

Kveðja Sólrún Dröfn og Artemis Rós.

Góður árnagur á HRFÍ sýningunni :)

22. nóvember 2010 klukkan 12:45
Þær Hrafna og Artemis Rós fóru á hundasýningu HRFÍ um helgina og stóðu sig með príði.
Þær fengu báðar mjög góðar umsagnir og enduðu í sínum flokkum í öðru (Artý) og fjórða (Hrafna) sæti. 
Til hamingju með það.Smile

Ódýrar kambar-jólatilboð

17. nóvember 2010 klukkan 10:31
http://www.esjugrund.is/pages.php?idpage=11159

Ég rakst á þessa fínu kamba á mjög góðu verði hjá versl Esjugrund.  Ég á einn svona sem var  mun dýrari en þetta. Þessir kambar ná vel undirhárunum og oft alveg ótrúlegt hvað kemur mikið af hárum.
Kveðja Bryndís

Ekki hundi út sigandi.

13. nóvember 2010 klukkan 14:52
Veðrið núna er ekki beint það vinsælasta hjá tíkunum okkar ....þær litu ekki við því að fara út í morgun, enda bleytu stórhríð.  Það er stundum með ólíkindum hvað þær virðast geta haldið í sér lengi oft langt fram á daginn.   

ProPlan fóðrið góða.

22. október 2010 klukkan 13:51
Hæ hæ

Ég er komin með smá byrgðir á Pro Plan fóðrinu góða.  Ég hef haft mínar tíkur á þessu fóðri í 4 mánuði og sé mikinn mun á þeim sérstaklega Emblu hún var með mjög viðkvæman feld sem er orðin virkilega fallegur.

Þetta fóður er mjög lítið unnið aðeins einu sinni eldað... flest annað fóður er búið til úr fiski-eða kjöt mjöli.  ProPlan fóðrið er unnið beint úr fersku kjöti Laughing 

Ég fékk góðan díl hjá þeim í Ölgerðinni sem selja aðeins til ræktenda eða fyrirtækja svo ef þið sem hafið einhverntíman fengið hvolp hjá okkur hafið áhuga endilega semdið mail eða hringið í mig 8667239.

Bryndís